-->

Saturday, August 22, 2009

Tímatafla á haustönn 2009

Gæti breyst smávægilega
MMA hópurinn er lokaður hópur og aðeins þeir sem hafa minnst 3mánaða reynslu í BJJ og Kickboxi hafa möguleika á að æfa í honum. Allir aðrir tímar eru opnir. Nánari upplýsingar er hægt að fá á spark@internet.is

kv FFC


Wednesday, August 19, 2009

Haraldur kominn heim frá Danmörku




Haraldur Óli er kominn heim frá 4. vikna æfingarferð. Hann var staddur í Danmörku til að æfa hjá Copenhagen Sports Academy (CSA). Video og myndir frá ferðinni munu koma inn á síðuna innar tíðar. Hægt er kíkja á www.csa.dk til að skoða nánar klúbbinn.

Æfingar tímabilið fer síðan að hefjast að nýju 1.september og bjóðum við alla velkomna að kíkja á æfingar hjá okkur. Stundatöflunni verður póstað inná síðuna um leið og hún er full kláruð.

kv FFC

Sunday, July 26, 2009

Arnar Freyr þjálfar hjá Fjölni

Fjölnir hefur fengið til sín gríðarlegan liðsstyrk hann Arnar Freyr Vigfússon (fyrir miðju á myndinni) mun taka yfir Brazilian Jiu Jitsu kennslu í Fjölni. Kynningaræfingar verða á þriðjudaginn og fimmtudaginn kl 18:00 í Egilshöll (beint á móti heilsuakademíunni)

Upplýsingar um Arnar:
Sími: 822 9698
e-mail: kenzo@torg.is
Fæddur: 1980
Hlutverk: BJJ/MMA/Submission grappling þjálfari
Hefur æft BJJ/MMA síðan: Byrjaði í lok ágúst 2004
Núverandi árangur:
Fjólublátt belti undir Matt Thornton síðan í júlí 2006.
Viðurkenndur þjálfari innan SBG. Hefur dvalið lengi í Bandaríkjunum og Írlandi eingöngu að stunda BJJ og MMA.
Keppnisárangur:
Oregon Subleague, advanced division, 175-199 pund. 1. sæti
Oregon Subleague, Subleague Championships, adv. div. 175-199 pund. 3. sæti
Irish Open. Open weight purple belt division. 2. sæti
Mjölnir Open 2006, -81 kg. 1. sæti. Mjölnir Open 2006, opinn flokkur, 1. sæti.
Mjölnir Open 2007, -73 kg. 1. sæti. Mjölnir Open 2007, opinn flokkur, 2. sæti.
Fyrri Reynsla: World Jiu Jitsu, brúnt belti. Heðfbundið karate í 2 ár.

Monday, June 1, 2009

Steve Maxwell til Íslands

Meistarinn sjálfur Steve Maxwell kemur á klakann í September. Sjálfsögðu munum við fá hann til að vera með BJJ æfingu hjá okkur í Fjölni.

Herna er glæsilegt myndband sem Jón Viðar gerði um kappann

Friday, May 29, 2009

Myndir frá nýja salnum

Teknar á GSM svo afsakið gæðinn. Allir velkomnir á æfingar hjá okkur í sumar. Byrjum síðan aftur í lok ágúst eða byrjun september með ÞÉTTA! stundatöflu BJJ1, BJJ2, MMA, Kickbox, Kettlebells, Taekwondo og fleira! Meiri upplýsingar um æfingar á spjallborðinu okkar. ERUM I EGILSHÖLL







Tuesday, May 26, 2009

Mjölnir Open 4 og flutningar

Mjölnir Open 4 er nú lokið. Sterkasta og stærsta nogi mót landsins. FFC stóð sig mjög vel á mótinu og hampaði nokkrum verðlauna sætum þar á meðal gulli í -99kg flokki.

Hérna má sjá smá klippur frá mótinu



Annars er það á dagskrá hjá FFC að flutningur er hafinn í Egilshöllina í nýja (tímabundinn sal) á meðan við bíðum í x langan tíma eftir SJUKA! salnum okkar

Friday, April 10, 2009

Mót #2 FFC -MYNDBAND-

Siggi gerði myndband með klippum frá mótinu. Gjöriði svo vel.


FFC Mót #2



Hérna er myndbandið frá fyrsta mótinu:


Sunday, March 22, 2009

Mót #2 Gi

Annað mót F.F.C. fór fram á laugardaginn. 

Sigurvegari í léttari flokki var Sigurður M. Birnisson

Sigurvegari í þyngri flokki var Karl

Sigurvegari í opnum flokki var Helgi Rafn.

Mótið gekk mjög vel og voru margar ÞRUSU glímur og vægast samt spennandi. Fólk tekur mótunum greinilega mjög vel því margir koma að horfa á og sýna mótinu áhuga. Næsta mót verður í lok annarinnar og verður það hálfgert lokaslútts mót. Hugmyndinn að því móti er að hafa grill og skemmilegheit eftir á og einnig verður bolasala ásamt öðru til styrktar Haraldi Óla þjálfara Fjölnis sem heldur út til Danmerkur 22.júlý og verður þar í einn mánuð eingöngu til að æfa BJJ, MMA og Kickbox hjá Copenhagen's sports academy (www.csa.dk). Haraldur kemur þá heim með mun meiri reynslu á næsta tímabili sem skilar sér beint til ykkar. Ef þið hafið hugmyndir að einhverjri styrktarsölu eða styrktarsölu endilega látið ljós ykkar skína. 

Bola og Wc sala er það sem komið er og verið að skoða þær hugmyndir.

Hvet síðan fólk til að skoða spjallborðið og panta sér nýju bolina okkar sem eru að fara í prentun.

Myndir og myndbönd frá mótinu verða væntaleg von bráðar

FFC

Sunday, February 15, 2009

Innanfélagsmót #1

Fyrsta innanfélagsmóti F.F.C. er lokið. Mótið gekk vonum framar og voru yfir 20 keppendur skráðir til leiks. Sigurvegari í léttari flokknum var Sigurgeir Heiðarsson. Helgi Rafn sigraði í þyngriflokki og opnum flokki. Myndir og myndbönd frá mótinu er hægt að nálgast hér til hliðar á síðunni og einnig á spjallborðinu okkar sem einnig er að finna hér til hliðar á síðunni.





Stundaskrá


Bjóðum alla velkomna í fríian prufutíma. Stelpur æfa frítt hjá okkur!

Smellið HÉR til að sjá stærri útgáfu af stundatöflu